Nr. Nafn Stig Mörk Mætt
1 Tommi 152,8 80 9
2 Hallur 145,2 19 7
3 Sævar 139,1 31 6
4 Maggi 134,7 37 10
5 Bragi 125,0 15 6
6 Pétur 124,2 20 8
7 Matti 119,6 15 6
8 Valli 113,1 14 10
9 Þórhallur 103,3 6 8
10 Doddi 95,2 17 7
11 Alli 92,9 12 8
12 Gústi 62,8 12 6
Siggi 131,4 1 1
Gísli 119,0 20 7
Kalli 106,5 12 8
Borgar 54,0 8 2
Dagur Skipting Bláir Grænir Rauðir
1. sep. Handhóf Doddi Gísli Matti Pétur 9 Hallur Maggi Sævar Valli 19 Alli Gústi Kalli 7
8. sep. Jöfn lið Alli Doddi Kalli 11 Hallur Maggi Tommi 16 Gústi Pétur Sævar Valli 7
15. sep. Dreifð Bragi Doddi Pétur Valli 14 Alli Gústi Maggi Þórhallur 7 Hallur Kalli Matti Tommi 12
22. sep. Jöfn lið Borgar Doddi Valli 6 Bragi Hallur Kalli Matti 13 Maggi Sævar Tommi Þórhallur 16
29. sep. Dreifð Gústi Tommi Þórhallur 7 Gísli Hallur Maggi Matti 15 Bragi Kalli Valli 11
6. okt. Handhóf Gísli Kalli Valli 9 Alli Maggi Matti Þórhallur 7 Hallur Pétur Siggi Tommi 17
13. okt. Jöfn lið Alli Gísli Maggi Matti 16 Bragi Hallur Tommi Þórhallur 9 Borgar Gústi Pétur Valli 7
20. okt. Dreifð Alli Maggi Valli 5 Gísli Pétur Sævar 14 Doddi Kalli Tommi Þórhallur 13
27. okt. Jöfn lið Bragi Tommi Þórhallur 15 Alli Doddi Gísli Maggi 5 Pétur Sævar Valli 12
3. nóv. Dreifð Doddi Gústi Kalli Þórhallur 2 Alli Gísli Sævar Valli 14 Bragi Maggi Pétur Tommi 17
10. nóv. Handhóf Gústi Hallur Maggi Tommi Alli Bragi Doddi Kalli Pétur Sævar Valli Þórhallur
17. nóv. Jöfn lið
24. nóv. Jafnt saman
1. des. Jöfn lið
8. des. Stig
15. des. Stig

Fyrirkomulag

Við spilum fjórar umferðir með þremur liðum.

Hver leikur er fjórar og hálf mínúta, en hugsanlega þarf að stytta tímann í síðustu umferð.

Dómari / tímavörður lætur vita þegar mínúta er eftir af leik.

Liðið sem hvílir leggur til dómara úr hópi postula - nema postuli í fríi sé mættur til dóm- og tímagæslu.

Hlutverk dómara er að skera úr um vafaatriði og deilur, fylgjast með tíma og stöðu leiksins, leikmenn dæma sjálfir eins og hægt er. Úrskurður dómara stendur, en dómari getur mögulega skipt um skoðun ef leikur er ekki hafinn.

Liðið sem hvílir leggur einnig til ritara.

"Bláir" og "grænir" byrja, svo "bláir" og "rauðir" og loks "grænir" og "rauðir". "Þreyttir" byrja með boltann, þeas. þeir sem voru að klára leik - grænir eru (auðvitað) "þreyttir" í fyrsta leik.

Liðið sem var að spila er áfram á sama vallarhelmingi.

Skiptingar

Sömu fjórir leikmenn eru bara einu sinni saman á tímabili eða frá síðasta tímabili á undan.

Komi fleiri en ein skipting til greina í eitthvert skipti er skipting valin af handahófi.

Í tveimur síðustu tímunum er skipt þannig að stig leikmanna séu sem jöfnust en einn þriðji af ójöfnustu skiptingunum kemur ekki til greina.

Í fyrsta, sjötta og ellefta (ef ekki annar af tveimur síðustu) tíma er skipt af handahófi án tillits til einkunnar / forgjafar eða hversu oft menn hafa verið saman, fyrir utan að sömu fjórir geta ekki verið saman.

Í þeim tímum sem eftir eru er til skiptis reynt að jafna einkunnir liðanna og jafna hverjir hafa verið saman á núverandi og síðasta tímabili. Þegar verið er að jafna hverjir hafa verið saman koma níundi hluti ójöfnustu skiptinga ekki til greina.

Fyrir síðustu tíma eru fyrst teknar út allar skiptingar þar sem tveir af þremur efstu (sem hafa mætt nægilega oft til geta unnið) eða þremur neðstu eru saman.

Endanleg skiptingin er sjaldnast klár fyrr en rétt fyrir tíma. Varamannaröðin fer eftir mætingu síðustu tímabila, varamannaröðin er: Kalli, Gísli, Borgar og Siggi.

Stigagjöf

Hver leikmaður fær stig síns liðs á hverju kvöldi.

Ef það vantar mann skiptast menn á að spila sem varamenn. Ef allir fá jafnmarga leiki sem varamenn fá varamenn stig úr sínum leikjum. Ef varamenn spila fleiri en einn leik er meðaltal notað. Leikmenn í liðum sem þurfa að nota skiptimann fá 20% bónus ofan á unnin stig.

Ef leikmaður getur ekki spilað fær hann 100% af meðaltali tímabilsins ef hann mætir og dæmir, annars 70%.

Leikmaður þarf að ná 2/3 mætingu til að geta unnið, td. 8 tíma af 11, 9 tíma af 13, 10 tíma af 14 eða 15, 11 tíma af 16 eða 12 tíma af 17.

Leikmaður þarf að ná 1/3 mætingu til að geta öðlast rétt á heiðurssæti (vesti eða bolta), td. 4 tíma af 11, 5 tíma af 15, 6 tíma af 16.

Sá sem ekki er tilbúinn þegar tíminn byrjar fær tvö mínusstig.

Verðlaun

Sigurvegarinn fær 6 Egils Gull bjóra frá hverjum Postula.

Sá sem nær öðru sæti fær Whisky flösku.

Sá sem nær þriðja sæti fær rauðvínsflösku.

Þrír neðstu sjá um vestin á næsta tímabili.

Sá sem er í fjórða neðsta sæti sér um bolta og klukku á næsta tímabili.

Sá sem er í fimmta neðsta sæti passar upp á varavestin á næsta tímabili.

Reglur

Fótboltareglur gilda nema annað sé tekið fram.

Ekki er sérstakur markvörður en leikmenn mega verja viðkvæma líkamshluta með höndum og það er ekki "hendi" nema leikmaður verji viljandi (eða ósjálfrátt) með hendi eða sé með hendi í óeðlilegri stöðu út frá líkamanum og komi þannig í veg fyrir mark. Varnarmaður nýtur alltaf vafans, viðkvæmir líkamshlutar eru lauslega skilgreindir og einfaldast að varnarmaður meti sjálfur hvort hann gefur markið. Sama gildir um "hendi" sem ekki kemur í veg fyrir mark - það er víti ef brotið er innan vítateigs en aukaspyrna ef það er utan vítateigs. Einfaldast er að leikmaður sem notar hendina utan vítateigs skili boltanum til andstæðinganna.

Við notum ekki gul eða rauð spjöld en brot sem myndi gefa rautt spjald, td. rænir augljósu marktækifæri, gefur einfaldlega mark.

Boltinn er úr leik ef hann fer aftur fyrir endalínu, í loftið, í drasl í loftinu eða upp fyrir ofna.

Það má skora hvaðan sem er innan við miðju, lágmarkssnerting nægir til og nýtur sóknarmaður vafans - það má svo skora með skalla hvaðan sem er.

Sparkað er úr horni og innsparki, notum ekki innköst. Það má skora beint úr horni, enda sé boltinn í horninu, en ekki úr markspyrnu eða innsparki. Eftir mark er byrjað með markspyrnu. Markspyrna er tekin úr kyrrstöðu innan vítateigs þannig að boltinn verður að fara út fyrir vítateig eða vera snertur af samherja.

Vítateigurinn er miðaður við heilu línuna.

Víti er tekið af leikmanni sem brotið er á, nema hann sé illa meiddur, og þarf hann að skjóta úr kyrrstöðu frá vítapunkti.

Lið sem brotið er á má taka aukaspyrnu strax eða halda áfram.

Leikmaður má ekki halda í rimla.

Skriðtæklingar eru harðbannaðar og kosta mark.

Ef leikmaður þarf að reima lætur hann vita þegar boltinn er úr leik, dómari stoppar klukku og leikurinn fer ekki af stað fyrr en leikmaður er tilbúinn.

Andstæðingar þurfa að vera 3 metra frá bolta þegar aukaspyrna, innspark eða horn er tekið.

Ef lið er lengur en 3 sekúndur að hefja leik frá því að boltinn er kominn á réttan stað - td. við að taka horn, innspark eða markspyrnu - fá andstæðingarnir boltann.