Fyrirkomulag
Við spilum fjórar umferðir með þremur liðum.
Hver leikur er fjórar og hálf mínúta, en hugsanlega þarf að stytta tímann í síðustu umferðunum.
Dómari / tímavörður lætur vita þegar mínúta er eftir af leik.
Liðið sem hvílir leggur til dómara úr hópi postula - nema postuli í fríi sé mættur til
dóm- og tímagæslu.
Hlutverk dómara er að skera úr um vafaatriði og deilur, fylgjast með tíma og stöðu leiksins,
leikmenn dæma sjálfir eins og hægt er.
Úrskurður dómara stendur - eins og fótboltareglurnar segja til um. Dómari getur mögulega skipt
um skoðun ef leikur er ekki hafinn, annars er úrskurður dómara endanlegur.
Liðið sem hvílir leggur einnig til ritara.
"Bláir" og "grænir" byrja, svo "bláir" og "rauðir" og loks
"grænir" og "rauðir". "Þreyttir" byrja með boltann, þeas.
þeir sem voru að klára leik - grænir eru (auðvitað) "þreyttir" í fyrsta leik.
Liðið sem var að spila er áfram á sama vallarhelmingi.
Skiptingar
Sömu fjórir leikmenn eru bara einu sinni saman á tímabili eða frá síðasta tímabili á undan.
Komi fleiri en ein skipting til greina í eitthvert skipti er skipting valin af handahófi.
Í tveimur síðustu tímunum er skipt þannig að stig leikmanna séu sem jöfnust en einn þriðji
af ójöfnustu skiptingunum kemur ekki til greina.
Í fyrsta, sjötta og ellefta (ef ekki annar af tveimur síðustu) tíma er skipt af handahófi
án tillits til getu eða hversu oft menn hafa verið saman, fyrir utan að sömu fjórir geta ekki verið saman.
Í þeim tímum sem eftir eru er til skiptis reynt að jafna getu liðanna og jafna hverjir hafa verið saman
á núverandi og síðasta tímabili. Þegar verið er að jafna hverjir hafa verið saman koma níundi hluti
ójöfnustu skiptinga ekki til greina.
Fyrir síðustu tíma eru fyrst teknar út allar skiptingar þar sem tveir af þremur efstu (sem hafa mætt nægilega oft til geta unnið) eða
þremur neðstu eru saman.
Endanleg skiptingin er sjaldnast klár fyrr en rétt fyrir tíma.
Varamannaröðin fer eftir mætingu síðustu tímabila, varamannaröðin er: Kalli, Gísli, Siggi og Borgar.
|
Stigagjöf
Hver leikmaður fær stig síns liðs á hverju kvöldi.
Ef það vantar mann skiptast menn á að spila sem varamenn. Ef allir fá jafnmarga leiki sem varamenn fá
varamenn stig úr sínum leikjum. Ef varamenn spila fleiri en einn leik er meðaltal notað. Leikmenn
í liðum sem þurfa að nota skiptimann fá 20% bónus ofan á unnin stig.
Ef leikmaður getur ekki spilað fær hann 100% af meðaltali tímabilsins ef hann mætir og dæmir, þarf ekki
að mæta í allan tímann, annars 70%.
Leikmaður þarf að ná 2/3 mætingu til að geta unnið, td. 8 tíma af 11, 9 tíma af 13, 10 tíma af 14 eða 15, 11 tíma
af 16 eða 12 tíma af 17.
Leikmaður þarf að ná 1/3 mætingu til að geta öðlast rétt á heiðurssæti, td. 4 tíma af 11, 5 tíma af 15, 6 tíma af 16.
Sá sem ekki er tilbúinn þegar tíminn byrjar fær tvö mínusstig.
Verðlaun
Sigurvegarinn fær 6 Egils Gull bjóra frá hverjum Postula.
Sá sem nær öðru sæti fær Whisky flösku.
Sá sem nær þriðja sæti fær rauðvínsflösku.
Þrír neðstu sjá um vestin á næsta tímabili.
Sá sem er í fjórða neðsta sæti sér um bolta og klukku á næsta tímabili.
Sá sem er í fimmta neðsta sæti passar upp á varavestin á næsta tímabili.
|
Reglur
Fótboltareglur gilda nema annað sé tekið fram.
Ekki er sérstakur markvörður en leikmenn mega verja viðkvæma líkamshluta
með höndum og það er ekki "hendi" nema leikmaður verji viljandi (eða ósjálfrátt) með hendi
eða sé með hendi í óeðlilegri stöðu út frá líkamanum og komi þannig í veg fyrir mark.
Varnarmaður nýtur alltaf vafans, viðkvæmir líkamshlutar eru lauslega skilgreindir og
einfaldast að varnarmaður meti sjálfur hvort hann gefur markið.
Sama gildir um "hendi" sem ekki kemur í veg fyrir mark - það er víti ef brotið
er innan vítateigs en aukaspyrna ef það er utan vítateigs. Einfaldast er að leikmaður sem
notar hendina utan vítateigs skili boltanum til andstæðinganna.
Við notum ekki gul eða rauð spjöld en brot sem myndi gefa rautt spjald, td. rænir augljósu marktækifæri,
gefur einfaldlega mark.
Boltinn er úr leik ef hann fer aftur fyrir endalínu, í loftið, í drasl í loftinu eða upp fyrir ofna.
Það má skora hvaðan sem er innan við miðju, lágmarkssnerting nægir til og nýtur sóknarmaður vafans -
það má svo skora með skalla hvaðan sem er.
Sparkað er úr horni og innkasti (innsparki). Það má skora beint úr horni, enda sé boltinn í horninu, en
ekki úr markspyrnu eða innsparki. Eftir mark er byrjað með markspyrnu (útsparki). Markspyrna er tekin úr
kyrrstöðu innan vítateigs þannig að boltinn verður að fara út fyrir vítateig eða vera snertur af samherja.
Vítateigurinn er miðaður við heilu línuna.
Víti er tekið af leikmanni sem brotið er á úr kyrrstöðu á vítapunkti.
Lið sem brotið er á má taka aukaspyrnu strax eða halda áfram.
Leikmaður má ekki halda í rimla.
Skriðtæklingar eru harðbannaðar og kosta mark.
Ef leikmaður þarf að reima lætur hann vita þegar boltinn er úr leik, dómari stoppar klukku og leikurinn
fer ekki af stað fyrr en leikmaður er tilbúinn.
Andstæðingar þurfa að vera 3 metra frá bolta þegar aukaspyrna, innspark eða horn er takið.
Ef lið er lengur en 3 sekúndur að hefja leik frá því að boltinn er kominn á réttan stað,
td. við að taka horn, innspark eða markspyrnu, fá andstæðingarnir boltann.
|